
APRÓ Kaffi: Forritun og endurforritun með gervigreind
Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf
9. apríl
APRÓ Kaffi: Forritun og endurforritun með gervigreind
Hvar:
Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf
Hvenær:
9. apríl
8:30-10:00
Verð:
0 kr.
Um viðburðinn
Markviss notkun gervigreindar er orðin hluti af daglegri hugbúnaðarþróun. Á fundinum sýnum við hvernig við hjá APRÓ nýtum gervigreind í raunverulegri þróunarvinnu, allt frá fyrstu línu kóða til umbóta á eldri kerfum.
Dagskrá
Á fundinum fara Hjálmar Leó Einarsson, verkefnastjóri, og Jósúa Theodórsson, forritari hjá APRÓ, yfir hvernig gervigreind er nýtt í daglegri þróun.
Sýnd verða skýr og raunveruleg dæmi um hvernig Claude er notað til að:
-skrifa og endurskipuleggja kóða
-greina og bæta eldri kerfi
-stytta þróunartíma án þess að fórna gæðum
Einnig verður fjallað um:
-hvernig gervigreind fellur inn í núverandi kerfi og verkferla
-hvað virkar í reynd og hvað ekki
-hvað þarf til að tryggja öryggi og gæði í kóða sem unninn er með aðstoð gervigreindar
Fundarstjóri verður dr. Óli Páll Geirsson, forstöðumaður gagnavísinda og gervigreindar hjá APRÓ.
Markhópur
Fundurinn er ætlaður stjórnendum, tæknistjórum, sérfræðingum og almennu starfsfólki sem ber ábyrgð á gögnum, rekstri og upplýsingatækni; allt það fólk sem vill skilja hvernig þróa má núverandi kerfi áfram án þess að fara aftur á byrjunarreit.
Ný fundaröð
APRÓ Kaffi er ný fundaröð, sem mun leggja áherslu á fræðslu, raunveruleg dæmi og skýra umræðu um tækni og samspil hennar við hversdag fólks í atvinnulífinu.
Aðrir morgunverðarfundir í deiglunni:
Tímaraðagögn og gervigreind með Postgres
MCP-þjónar: APRÓ kynnir til dæmis Sharepoint og eigin sérsmíðaða þjóna
Oracle og gervigreind: Hvernig er hægt að nota AI á núverandi innviðum
Bestu venjur í notkun gervigreindar: Hvar er sjálfbært að fjárfesta í dag?
Hlíting og ytri breytingar tengdar upplýsingaöryggi: NIS-2, Dora og fleira
Gerum meira með minna: Sveitarfélög með puttann á púlsinum


