Endurforritun
með gervigreind

Styrktu öryggi og rekstur með því að nútímavæða

eldri kerfi með gervigreind.

Nútímavæðing án málamiðlana

Margir sitja uppi með gömul kerfi sem eru dýr í rekstri, erfið í viðhaldi og skapa öryggisáhættu. Með gervigreind er hægt að brúað bilið á milli fortíðar og framtíðar. Gervigreindin gerir okkur kleift að rýna í flókinn kóðagrunn á örfáum mínútum, greina villur og endurskrifa kerfi yfir í nútímaleg forritunarmál á broti af þeim tíma sem það tæki forritara að gera handvirkt.

  • Greind sem lærir af reynslunni

    Ólíkt hefðbundnum aðferðum, þá safnar okkar AI-vinnuflæði þekkingu á milli verkefna. Gervigreindin lærir á þinn arkitektúr, skilur vinnureglur teymisins og man fyrri mistök svo þau endurtaki sig aldrei. Þetta er ekki bara sjálfvirkni; þetta er stöðug gæðaþróun.

  • Mælanlegur tímasparnaður og skilvirkni

    Rauntölur sýna að markviss notkun gervigreindar við endurkóðun getur skilað allt að 60% tímasparnaði í hugbúnaðarvinnu. Þetta þýðir að þú kemur vörunni fyrr á markað og nýtir mannauðinn þinn í nýsköpun í stað þess að eyða orkunni í viðhald á gömlum kerfum.

  • Aukið öryggi og minni rekstrarkostnaður

    Með því að endurforrita með gervigreind lágmarkar þú mannleg mistök í flóknum ferlum. Gervigreindin getur búið til sjálfvirkar prófanir samhliða endurskrifunum kóða sem tryggja að nýja kerfið sé ekki bara hraðvirkara, heldur fyllilega öruggt og tilbúið til að mæta kröfum nútímans um persónuvernd og hlítingu.

Vinnuflæði sem byggir upp þekkingu. Gervigreindin styrkir teymið.

Hjálmar Leó Einarsson

Teymisleiðtogi í hugbúnaðargerð

Notaðu gervigreind til að létta verkið: Hámarkaðu gæði, lágmarkaðu kostnað.

Jósúa Theodórsson

Hugbúnaðarsérfræðingur

APRÓ Kaffi

APRÓ Kaffi

Gervigreind í hugbúnaðarþróun

Gervigreind í hugbúnaðarþróun

Spurningar um endurforritun með gervigreind

Hvernig er hægt að hefja nýtt verkefni á mettíma?

Hvernig kemur maður í veg fyrir að gervigreind endurtaki sömu mistökin?

Hver er mælanlegur ávinningur af því að nota gervigreind í flókinn kóða?

Hvernig er hægt að nota öfluga gervigreind í forritun án þess að kostnaðurinn fari úr böndunum?

Hvernig kemur maður í veg fyrir að gervigreindin lendi á sama veggnum aftur og aftur?

Með því að skrá niður það sem ekki má gera, tryggjum við að gervigreindin læri af mistökunum. Hún flettir upp í þessari 'handbók mistakanna' áður en hún byrjar, svo hún vinni verkið rétt í fyrstu tilraun.

Hvernig komum við í veg fyrir óáreiðanleika hjá gervigreindinni í stórum verkefnum?

Með því að brjóta niður verkefnið í smáar og vel skilgreindar einingar sem auðvelda gervigreindinni að halda samhengi í flóknum aðgerðum.

Hvers vegna ættu fyrirtæki að leggja í það að endurskrifa gömul kerfi (Legacy Code) með gervigreind?

Hvernig vitum við að kóðinn sem gervigreindin skrifar virki í raun og veru?

Viltu vita meira?

Gervigreind snýst ekki einungis um að auka hagkvæmni heldur finna nýjar leiðir til að örva vöxt og virði fyrirtækja. Við hjálpum þér að komast á flug með gervigreind, í öruggu umhverfi og á réttum forsendum.