Agent-First Design

Jón Levy Guðmundarson Selmuson
Greinar
1/6/26

Mynd: NanoBanana
Ég hef varið jólunum í sveitinni hjá tengdó undanfarin 15 ár. Gefa kindum, mjólka kýr og moka flór. Því fylgir ákveðin ró að vinna líkamlega og einhæfa vinnu, það skapar rými fyrir hugmyndir sem daglegt amstur kæfir.
Við höfum hannað heim sem snýst um afköst, en hugurinn þarf rými til að reika áður en hann kemst á leiðarenda.
Í ár, á milli verka, kom ég því í orð sem ég hef m.a. verið að vinna að á líðandi ári sem AI Tech Lead hjá APRÓ.
Millilag sem umbreytir OpenApi skema í MCP tólaskema svo að agentar geti talað beint við REST vefþjónustur.
Fyrst með eigin lausn en síðar með AWS AgentCore.
Mynstrið var orðið ljóst löngu áður en ég fann á það nafn.
Agent-first design
Síðasta áratuginn hefur API-First verið hálfgert guðspjall. Hanna samninginn (contract) fyrst. Skjala hann. Byggja út frá honum. Þetta breytti því hvernig við smíðum hugbúnað.
En Agent-first kemur ekki í staðinn fyrir API-first. Það byggir ofan á það. Fullkomnar það, kannski.
MCP tóla skema (tool schema) er fyrir agents, það sem OpenAPI er fyrir vefþjónustur. Þetta eru ekki keppinautar – heldur tvær hliðar á sama peningnum. Viðmótið sem vefþjónustan þín sýnir umheiminum er nú skiljanleg bæði fyrir þjónustur sem fylgja leiðbeiningum og þær sem beita rökhugsun.
Tökum Swagger Petstore sem dæmi – "hello world" í API heiminum.
Viðeigandi, miðað við hvar ég var staddur um jólin.
Hefðbundin nálgun:
Hanna REST endapunkta, skrifa SDK, spíta út OpenAPI schema og skrifa skjölun.
Agent-first nálgun:
Hanna sama spekk, en skrifa lýsingarnar eins og leiðbeiningar (instructions). Ekki bara óvirkar lýsingar, heldur hvað þjónustan þarf að vita, hvenær á að nota endapunktinn og hver útkoman á að vera.
Skoðum muninn á Swagger Petstore dæminu:
Hefðbundin lýsing:
"Finnur gæludýr eftir stöðu. Skilar lista af dýrum."
Agent-first lýsing:
"Notaðu þennan endapunkt þegar notandi biður um að sjá hvaða dýr eru til sölu. Þú verður að setja 'status' færibreytuna sem 'available'. Útkoman er JSON listi af dýrum; sýndu notandanum nöfnin og tegundirnar úr þeim lista. Ef listinn er tómur, segðu notandanum að ekkert fannst."
Nú getur agent-inn vafrað um verslunina, tékkað á lagerstöðu og pantað vörur – með því að "hugsa" sig í gegnum sama spekk og aðrar þjónustur.
Einn sannleikur. Engin tvíverknaður.
Hver er ávinningurinn?
Vel hannað API er orðið "agent-ready".
Fjárfestingin í API-first skilar sér margfalt til baka.
"Agent consumers" verða fyrsta flokks þegnar án þess að krefjast viðhalds.
Þegar ég hanna multi-agent kerfi í dag spyr ég ekki "API eða agent viðmót?"
Ég spyr:
"Hvernig hanna ég OpenApi skemað þannig að fólk og þjónustur viti hvernig hún virkar og LLM geti notað hana með rökhugsun?"
Þetta er kjarninn í Agent-first hugsun.
Ekki bylting, heldur þróun sem lá alltaf í loftinu.