MS beislar gervigreindina
Menntaskólinn við Sund og upplýsingatæknifyrirtækið APRÓ hafa gert með sér samning um víðtækt þróunarsamstarf á sviði gervigreindar. Samstarfið lýtur að innleiðingu á APRÓ Vitanum, öruggu gervigreindarumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk, og ráðgjöf og stefnumótun fyrir þróun kennslu og náms í gervigreind.
Fréttir
3/10/26

MS nýtir gervigreind til að styðja kennara í daglegu starfi og hyggst gera það í enn frekari mæli. Meðal annars við undirbúning kennslu, verkefnagerð, endurgjöf og til að einfalda skjalavinnu og upplýsingamiðlun innan skólans. Með innleiðingu og notkun APRÓ Vitans öðlast MS fullt eignarhald á gögnum og þeim gervigreindarlausnum sem þar verða þróaðar.
Markviss og örugg notkun
,,Tilgangur samningsins er að tryggja markvissa og örugga notkun gervigreindar innan menntaskólans og skapa traustan ramma utan um tæknina til að styðja við nám, kennsluþróun og daglegt starf. Við viljum að bæði nemendur og starfsfólk geti notað gervigreindina með uppbyggilegum hætti í hvetjandi og skapandi umhverfi. Það skiptir okkur líka lykilmáli að innleiðing á heildrænni lausn af þessu tagi tryggir að nemendur og starfsfólk hafa jafnan aðgang að sameiginlegu umhverfi gervigreindar og jafnframt áreiðanlegum verkfærum,”
segir Leifur Ingi Vilmundarson, konrektor Menntaskólans við Sund.

Sprotasjóður styrkti verkefnið
Leifur segir að rekja megi upphaf þessa verkefnis með APRÓ til þess að MS fékk veglegan styrk frá Sprotasjóði Rannís, en hann styrkir verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
,,Við sjáum tækifæri til að taka jákvæð skref fram á við, jafnt til að bæta þjónustu við nemendur og kenna þeim að beisla gervigreindina og nota hana rétt, með ábyrgum og öruggum hætti. Við höfum til dæmis nú þegar smíðað agent eða snjallmenni, sem aðstoðar við þróun og smíðar á verkefnum fyrir þýskukennslu. Vonumst við til að þessi tækni reynist kennurum okkar öflugur hjálparkokkur,”
bætir Leifur Ingi við.
Dýrmætur lærdómur
,,Við innleiðingu á APRÓ Vitanum byggjum við á einfaldri nálgun þar sem byrjað á stefnumótun og raunhæfri markmiðasetningu. Í kjölfarið þróum við sérhæfðar lausnir byggðar á bestu venjum og mælum árangur. Þróunarsamstarf af þessu tagi er APRÓ afskaplega dýrmætur lærdómur þar sem gervigreindin mun knýja miklar framfarir í afköstum, framleiðni og uppgötvunum í skólastarfi, rannsóknum og vísindum,”
segir Hlöðver Þór Árnason, framkvæmdastjóri APRÓ.
Gagnavernd í hæsta forgangi
,,APRÓ Vitinn gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að byggja upp eigin innviði gervigreindar á öruggan og skilvirkan hátt. Þetta er skýjalausn með gagnavernd í hæsta forgangi. Lausnin er hugsuð sem traustur grunnur vegferðar í gervigreind þar sem gagnavernd og notagildi eru í forgangi. Gögn haldast innan öruggs skýjaumhverfis, eru dulkóðuð í flutningi og geymslu og eru aldrei notuð til að þjálfa opin gervigreindarlíkön,“
segir Elín Þóra Ellertsdóttir, stjórnandi í viðskiptaþróun hjá APRÓ.