Reiknistofa lífeyrissjóða innleiðir APRÓ Vitann

Fréttir

2/11/26

Reiknistofa lífeyrissjóða (RL) hefur nú innleitt APRÓ Vitann, sem er aðgengilegt, hagnýtt og öruggt gervigreindarumhverfi, sérhannað fyrir íslenskar aðstæður og er veitt í áskriftarþjónustu. Hér er stuttlega rætt við starfsfólk RL um innleiðinguna, þau Margréti Sigurbjörnsdóttur, stjórnanda ráðgjafar og þjónustu, og Lúðvík Guðjónsson hugbúnaðarsérfræðing.

Hver var hvatinn að innleiða Vitann? 

,,Við hjá Reiknistofu lífeyrissjóða RL fengum APRÓ til okkar með kynningu á Vitanum. Við tengdum vel við þá uppsetningu og töldum það hagkvæmt fyrir okkur og okkar viðskiptavini að nýta sérþekkinguna hjá APRÓ. Við höfum unnið áður með Miracle og Andes sem eru nú sameinuð í APRÓ og höfum góða reynslu af þeirri samvinnu svo við vissum að þetta samstarf væri í góðum höndum.”

Lituð þið á aðra valkosti?

,,Já, við skoðuðum aðra möguleika eins og Copilot, en okkur fannst við hafa mesta stjórn á upplýsingaöryggi með þessari leið. Allar breytingar fara inn með okkar vitund og á okkar uppsetningu svo það er til dæmis enginn möguleiki á að aðrir geti nýtt þau gögn, meðal annars til að þjálfa upp líkön.”

Hvaða þekking var til staðar á gervigreind?

,,Við höfum verið að byggja upp þekkingu starfsfólks RL á gervigreindartólum með námskeiðum og innri kynningu. Gagnaöryggi skiptir okkur mjög miklu máli og sú nálgun sem við fáum með APRÓ Vitanum kemur vel til móts við okkar kröfur um gagnaöryggi.”

Hvaða möguleika sjáið þið í notkun Vitans?

,,Við erum nú þegar byrjuð að nota hann fyrir almenna LLM-notkun fyrir starfsfólk og höfum verið að þróa með APRÓ agent-þekkingu eða gervigreindarfulltrúa hvað snertir samþykktir viðskiptavina okkar, sem eru mikið til lífeyrissjóðir. Þessi fulltrúi nýtist vel í þjónustu og ráðgjöf, meðal annars í vinnu við aðstoðarmál. Næstu skref eru að tengja líkan í APRÓ Vitanum við þróunartól svo við getum nýtt þau til aðstoðar í forritun og prófunum. Í framtíð sjáum við síðan marga möguleika. Til dæmis að bjóða upp á spjall við snjallmenni í Jóakim-kerfinu og á sjóðfélagavefjum.”

Um Reiknistofu lífeyrissjóða

RL er hlutafélag í eigu tíu lífeyrissjóða og Greiðslustofu lífeyrissjóða. Viðskiptavinirnir eru aðallega lífeyrissjóðir, stéttarfélög og fjármálafyrirtæki. Hlutverk RL er að styðja við kjarnastarfsemi lífeyrissjóða, með því að starfrækja trausta og örugga innviði, veita vandaða þjónustu og auka árangur viðskiptavina. RL er eigandi hugbúnaðarkerfisins Jóakim. Þróun, rekstri og þjónustu vegna kerfisins er sinnt af RL.

Um APRÓ

APRÓ er vinnustaður 80 sérfræðinga sem starfa á sviði gagnatækni, gervigreindar, hugbúnaðarþróunar og skýjaþjónustu. Fyrirtækið var stofnað árið 2023 og er afrakstur sameiningar upplýsingatæknifyrirtækjanna Andes, Prógramm og Miracle.

Hafðu samband