Sjúkratryggingar innleiða gervigreind frá APRÓ
Sjúkratryggingar hafa gert samning við hugbúnaðarfyrirtækið Apró um innleiðingu gervigreindarkerfisins Vitans.
Fréttir

Sjúkratryggingar hafa gert samning við hugbúnaðarfyrirtækið APRÓ um innleiðingu gervigreindarkerfisins Vitans, sem ætlað er að sjálfvirknivæða hluta af skjalavinnslu stofnunarinnar.
Í tilkynningu segir að kerfið sé nú í prófun og verði fyrst notað við úrvinnslu erlendra reikninga vegna heilbrigðisþjónustu.
Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum og APRÓ benda fyrstu prófanir til þess að lausnin geti dregið úr þeim tíma sem fer í handvirka skráningu umsókna um allt að 80%.
Kerfið byggir á svokallaðri erindrekagervigreind (agentic AI) sem getur unnið verkefni í nokkrum skrefum. Það les upplýsingar úr reikningum á mismunandi tungumálum, dregur fram lykilatriði og skráir þau í kerfi Sjúkratrygginga. Starfsfólk stofnunarinnar fer síðan yfir upplýsingarnar og staðfestir þær.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar hjá Sjúkratryggingum, segir stofnunina vilja byrja á verkefnum þar sem hægt sé að mæla árangurinn áður en tæknin verði nýtt víðar.
„Sjúkratryggingar vinna með viðkvæm gögn. Persónuvernd og gagnaöryggi eru því algjörar forsendur okkar fyrir nýtingu gervigreindar,“ segir Áslaug Hulda.
Að sögn APRÓ verður kerfið keyrt á innviðum Sjúkratrygginga en ekki í opnu umhverfi. Stefnt er að því að bæta fleiri vinnuferlum við lausnina síðar.
Ljósmynd: Brieve Lyon
Fréttin birtist í Viðskiptablaðinu þann 28. október 2026