Fara til baka

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)
Hefur þú gott auga fyrir gæðum?
APRÓ leitar að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi í starf sérfræðings í hugbúnaðarprófunum (e. QA Specialist). Starfið er fjölbreytt og spannar bæði hefðbundið gæðaeftirlit sem og prófanir á kerfum sem nýta gervigreind – allt í nánu samstarfi við hagaðila innanhúss. Viðkomandi mun eiga virkan þátt í að þróa gæðaferla og innleiða sjálfvirkar prófanir en jafnframt kanna hvernig gervigreind getur nýst í sjálfum prófunarferlunum.
Viðkomandi verður hluti af þróunarteymi þar sem samvinna og þekkingarmiðlun skiptir sköpum. Hjá APRÓ vinnum við að hönnun og þróun öflugra hugbúnaðarkerfa sem mæta þörfum ólíkra rekstraraðila – þar sem öryggi, framúrskarandi notendaupplifun og áreiðanleiki eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gæðaeftirlit og prófanir á hugbúnaðarkerfum – bæði hefðbundnum og þeim sem nýta gervigreind
Þátttaka í hönnun, innleiðingu og viðhaldi á sjálfvirku prófunarumhverfi
Samvinna við forritara við gerð og framkvæmd skipulagðra prófunaráætlana
Greining, skráning og eftirfylgni galla og villna í hugbúnaði
Skoða hvernig gervigreind getur nýst í prófunarferlum og innleiðing slíkra verkfæra þar sem við á
Aðstoð við mótun og skráningu á gæðaferlum og verklagsreglum
Stuðningur við að efla gæðamiðaða menningu innan APRÓ
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Marktæk reynsla af gæðaferlum og prófunum í hugbúnaðarþróun
Hagnýt reynsla af sjálfvirkum prófunum
Hæfni til að skipuleggja og framkvæma bæði handvirkar og sjálfvirkar prófanir
Áhugi á gervigreind og hvernig hún nýtist í hugbúnaðarþróun
Sjálfstæð vinnubrögð, nákvæmni og áreiðanleiki í afhendingu
Góð enskukunnátta – íslenska er kostur en ekki skilyrði
Fríðindi í starfi
Kaupréttaráætlun
Sveigjanlegur vinnutími
Árlegur heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
APRÓ er nútímalegt upplýsingatæknifyrirtæki sem byggir á grunni Andes, Prógramms og Miracle. Hjá okkur starfa tæplega 90 sérfræðingar sem sameina áratugareynslu og nýjustu tækniþekkingu í hugbúnaði, skýjaþjónustu, gagnatækni og gervigreind. Við vinnum að verkefnum sem skipta máli og leggjum áherslu á traust, samvinnu og vellíðan í starfi.