APRÓ Kaffi: Microsoft SQL Server

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

Tilkynnt síðar

APRÓ Kaffi: Microsoft SQL Server

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

Tilkynnt síðar

APRÓ Kaffi: Microsoft SQL Server

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

Tilkynnt síðar

APRÓ Kaffi: Microsoft SQL Server

Hvar:

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

Hvenær:

Tilkynnt síðar

Verð:

0 kr.

Um viðburðinn

APRÓ heldur morgunverðarfund (dagsetning tilkynnt síðar) um hvernig hægt er að nota Microsoft SQL Server 2025 til að koma gögnum yfir í greiningarumhverfi og gervigreindarlausnir til að hagnýta með margvíslegum hætti. Fundurinn er opinn og ókeypis.

Dagskrá
Á fundinum ræðir Þröstur ,,Spörri” Jónasson, gagnagrunnssérfræðingur hjá APRÓ, um hvernig Microsoft  SQL Server 2025 gerir fyrirtækjum kleift að nýta gögn með markvissari hætti. Fjallað verður um gagnavinnslu, gagnageymslur, öryggi og tengingu gagna við greiningu og ákvarðanatöku, auk þess sem komið verður inn á hvernig slíkir innviðir mynda traustan grunn fyrir hagnýtingu gervigreindar.

Fundarstjóri verður dr. Óli Páll Geirsson, forstöðumaður gagnavísinda og gervigreindar hjá APRÓ.

Markhópur
Fundurinn er ætlaður stjórnendum, tæknistjórum, sérfræðingum og almennu starfsfólki sem ber ábyrgð á gögnum, rekstri og upplýsingatækni; allt það fólk sem vill skilja hvernig þróa má núverandi kerfi áfram án þess að fara aftur á byrjunarreit.

Ný fundaröð

APRÓ Kaffi er ný fundaröð, sem mun leggja áherslu á fræðslu, raunveruleg dæmi og skýra umræðu um tækni og samspil hennar við hversdag fólks í atvinnulífinu.

Aðrir morgunverðarfundir í deiglunni:

  • Tímaraðagögn og gervigreind með Postgres

  • MCP-þjónar: APRÓ kynnir til dæmis Sharepoint og eigin sérsmíðaða þjóna

  • Oracle og gervigreind: Hvernig er hægt að nota AI á núverandi innviðum

  • Bestu venjur í notkun gervigreindar: Hvar er sjálfbært að fjárfesta í dag?

  • Hlíting og ytri breytingar tengdar upplýsingaöryggi: NIS-2, Dora og fleira 

  • Gerum meira með minna: Sveitarfélög með puttann á púlsinum


Skráning