
APRÓ Kaffi: Forritun með aðstoð Claude Code
Gervigreind er ekki lengur bara spjallgluggi, hún er orðin virkur þátttakandi í hugbúnaðarþróun.
Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf
24. september
APRÓ Kaffi: Forritun með aðstoð Claude Code
Hvar:
Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf
Hvenær:
24. september
9:00-10:30
Verð:
0 kr.
Um viðburðinn
APRÓ heldur morgunverðarfund 24. september 2026 milli 9:00–10:30.
Gervigreind er ekki lengur bara spjallgluggi, hún er orðin virkur þátttakandi í hugbúnaðarþróun. Á þessum fundi köfum við ofan í þau tækifæri sem opnast þegar gervigreind er beitt kerfisbundið til að leysa flókin og raunveruleg þróunarverkefni.
Farið verður yfir hvernig nýta má Claude Code til að smíða skilvirkari verkferla og auka afköst í forritun, auk þess sem rætt verður um hagnýt skref við innleiðingu og viðhald á slíkum vinnubrögðum innan teymis. Að lokum verður horft til framtíðar og velt upp spurningunni: hvað þýðir það að reka fyrirtæki með aðstoð agenta?
Dagskrá
Dagskrá
Á fundinum fara Jósúa Theodórsson, hugbúnaðarsérfræðingur hjá APRÓ og Jón Levy Guðmundsson, teymisleiðtogi í hugbúnaðarþróun hjá APRÓ, yfir hvernig nýta má Claude Code og tengdar einingar í hugbúnaðarþróun.
Fjallað verður meðal annars um:
grunneiningar Claude: Agents, Skills og MCP-tengingar (MCP's)
hvernig hægt er að tvinna þessar einingar saman til að búa til verkferla sem gera gervigreind kleift að vinna stærri verkefni
dæmi um hvernig hver eining vinnur og dæmi um hvernig einingarnar geta unnið saman
hugleiðingar um hvernig hægt er að deila og viðhalda slíkum verkferlum
horft til framtíðar, hvert stefnir þróunin og hvað þýðir það að reka fyrirtæki með aðstoð agenta?
Boðið verður upp á umræður og fyrirspurnir úr sal.
Fundarstjóri verður dr. Óli Páll Geirsson.
Húsið opnar klukkan 8:30 með morgunkaffi og kynning hefst kl. 09:00
Markhópur
Fundurinn er ætlaður forriturum, upplýsingatæknifólki, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja skilja betur hvernig nýta má gervigreind og verkfæri á borð við Claude Code til að auka afköst og takast á við stærri verkefni í hugbúnaðarþróun.


