Hvar lenda gögnin þín þegar gervigreindin tekur við?

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

18. júní

Hvar lenda gögnin þín þegar gervigreindin tekur við?

Hvar:

Fundarsalur APRÓ við Urðarhvarf

Hvenær:

18. júní

8:30-10:00

Verð:

0 kr.

Um viðburðinn

APRÓ heldur morgunverðarfund 18. júní 2026 milli 8:30–10:00. 

Gervigreind er orðin hluti af daglegum rekstri fyrirtækja og stofnana. En hvert fara gögnin þegar við notum GPT, Claude og aðrar gervigreindarlausnir?

Á fundinum verður farið yfir hvernig sömu gervigreindarmódelin geta verið háð gjörólíkum vinnslusamningum, gagnavernd og lögsögu eftir því hvaða leið er valin. Fjallað verður um EU Data Boundary, ábyrgð kaupenda og þjónustuaðila og hvað fyrirtæki þurfa að hafa í huga áður en nýjar gervigreindarlausnir eru teknar í notkun.


Dagskrá

Á fundinum fara Andri Örvar Baldvinsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá APRÓ, og Anna Kristín Agnarsdóttir, lögfræðingur og ráðgjafi hjá SoftwareOne, yfir helstu álitaefni sem tengjast notkun gervigreindar í fyrirtækjum og stofnunum.

Fjallað verður meðal annars um:

  • hvað vinnslusamningar eru og hvers vegna þeir skipta máli

  • hvar gögn eru unnin þegar notast er við GPT, Claude og aðrar gervigreindarlausnir

  • EU Data Boundary og flutning persónuupplýsinga yfir landamæri

  • ábyrgð kaupenda, þjónustuaðila og stjórnenda

  • hvernig breytingar hjá Microsoft, AWS, Google, OpenAI og Anthropic hafa áhrif á íslensk fyrirtæki

  • hvers vegna vinnslusamningur sem var lesinn fyrir nokkrum árum endurspeglar ekki endilega stöðuna í dag

  • hvaða spurninga ætti að spyrja áður en gervigreindarlausn er tekin í notkun

Boðið verður upp á umræður og fyrirspurnir úr sal. Fundarstjóri verður dr. Óli Páll Geirsson.

Markhópur

Fundurinn er ætlaður stjórnendum, upplýsingatæknifólki, persónuverndarfulltrúum, verkefnastjórum og öllum þeim sem vilja skilja betur hvernig taka má upplýstar ákvarðanir um notkun gervigreindar í rekstri fyrirtækja og stofnana.

Ný fundaröð

APRÓ Kaffi er ný fundaröð sem leggur áherslu á fræðslu, raunveruleg dæmi og skýra umræðu um tækni og samspil hennar við hversdag fólks í atvinnulífinu.



Skráning